Fara beint í efnið

Að eldast

Í dag lifir fólk almennt lengur en áður. Það er líka virkara og hraustara en nokkru sinni fyrr. Til að styðja við aukin lífsgæði og virkni eldra fólks eru hér upplýsingar um hvað eina sem tengist þriðja æviskeiðinu, svo sem heilsueflingu, réttindamálum og þjónustu.

Farsæl efri ár

Á tímamótum nýs æviskeiðs er mikilvægt að búa sig vel undir það sem koma skal.
Sum kvíða því að láta af störfum á meðan önnur fagna. Gott er að byrja snemma að sjá þetta tímabil fyrir sér og huga að því hvernig best verður að verja tímanum.

Í verkefninu Gott að eldast er gengið út frá því að tryggja eldra fólki þjónustu við hæfi á réttu þjónustustigi og fjölga þeim sem taka virkan þátt í samfélaginu. Vert er að skoða umfjöllun um öldrunarmál á vef Stjórnarráðsins og réttindi eldra fólks á Mannréttindaskrifstofu Íslands.

Heilsuefling 

Fólk eldra en 65 ára er fjölbreyttur hópur bæði aldurs- og heilsufarslega séð.

Það þarf að huga vel að heilsunni alla ævi og undirbyggja vel efri árin. Fyrirbyggjandi aðgerðir eins og heilsuefling allt lífið vegur þar þungt til að draga úr þjónustuþörf síðar á ævinni. Svo virknin skili árangri þarf hún að vera fjölbreytt. Hugræn virkni er ekki síður mikilvæg en sú líkamlega og félagslegu hliðina má ekki vanrækja.

Sveitarfélög eru nú mörg farin að veita styrki til heilsueflingar eldra fólks. Þeir eru þá sambærilegir tómstundastyrkjum til barna og unglinga.

Hér má sjá þau sveitarfélög sem þegar veita eldra fólki tómstundastyrki.

Heilsufar eldra fólks

Með hækkandi aldri er eðlilegt að vart verði ýmissa breytinga á heilsufari og hætta á sjúkdómum eykst. Dæmi um slíkt eru sjón og heyrn. Þá geta minnistruflanir farið að gera vart við sig. Samspil aldurstengdra breytinga, sjúkdóma og lyfjanotkunar getur leitt af sér af sér minni færni. Mikilvægt er að bregðast við öllum breytingum og leita sér aðstoðar.

Heilabilun er sjúkdómur sem algengur er hjá eldra fólki. Mikilvægt er að vera vel á verði gagnvart einkennum og hvernig bregðast skal við.

Á Heilsuveru eru yfirgripsmiklar og gagnlegar upplýsingar sem henta öllum eldri en 60 ára.

Gott er að tryggja að aðstandandi sé skráður sem aðstandandi/tengiliður í sjúkraskrá eldri einstaklingsins.

Eftirlaun og lífeyrir eldra fólks

Eftirlaun eða lífeyrir eldra fólks samanstendur af lífeyri lífeyrissjóða, ellilífeyri almannatrygginga, , viðbótarlífeyrissparnaði og öðrum sparnaði. Eftirlaun eru greidd til æviloka.

Greiðslur úr lífeyrissjóði geta skert greiðslur ellilífeyris almannatrygginga, því er mikilvægt að umsækjendur um ellilífeyri leiti ráðgjafar hjá Tryggingastofnun.

Lífeyrisgreiðslur eru skattskyldar á sama hátt og launatekjur, því má einnig nýta ónýttan persónuafslátt maka.

Nánar má lesa um lífeyrismál og fleira sem gott er að hafa í huga: Að fara á eftirlaun.

Fjármál og sérkjör fyrir eldra fólk

Með aldrinum minnkar færni margra til að sjá um fjármál sín sjálft. Þá er gott að hafa tímanlega gert ráðstafanir svo sem að veita umboð til að sjá um ákveðin mál.

Algengt er að veittur sé aðgangur að heimabanka viðkomandi einstakling og prókúru á reikninga. Mikilvægt er að sátt sé í fjölskyldu um það hver taki að sér umsjón með fjármálum og að umsjónaraðili haldi bókhald. Þegar ekki er sátt er möguleiki að hlutlaus aðili komi að málum og stundum þarf að óska eftir fjárræðissviptingu hjá sýslumanni

Á Mínum síðum á island.is er hægt að veita umboð vegna Sjúkratrygginga og Landspítalaappsins svo dæmi sé nefnt.

Ýmis sérkjör og afslættir eru í boði fyrir eldra fólk, svo sem lægri gjöld fyrir heilbrigðisþjónustu, styrki Sjúkratrygginga og afslættir víða, sem vert er að kynna sér.

Íbúðir fyrir eldra fólk

Eldra fólk þarf að geta eignast og eða leigt húsnæði eftir þörfum hverju sinni. Fjölbreytt búsetuform eru í boði, en íbúar sem hafa verið metnir í þörf fyrir stuðning eiga rétt á heimahjúkrun og heimastuðningi eða stuðningsþjónustu sveitarfélaga óháð búsetuformi.

Þjónustuíbúðir og aðrar íbúðir fyrir eldra fólk eru ýmist sjálfseignar-, leigu- eða búseturéttaríbúðir.

Fjölbreytt búsetuform eru í boði fyrir eldra fólk.

Félagsstarf og tómstundir

Eldra fólki býðst að sækja félagsskap, þjálfun og dægradvöl í þjónustumiðstöðvar og félagsmiðstöðvar sem starfa í flestum sveitarfélögum landsins.

Sveitarfélögum er skylt samkvæmt lögum að tryggja aðgang að félags- og tómstundastarfi við hæfi. Í því sambandi skal lögð sérstök áhersla á fræðslu og námskeiðahald um réttindi aldraðra og aðlögun að breyttum aðstæðum sem fylgja því að hætta þátttöku á vinnumarkaði og halda úti almennu félagsstarfi.

Búa heima með stuðningi – Endurhæfing heima

Eldra fólki er gert kleift að lifa eðlilegu heimilislífi eins lengi og kostur er með heimaþjónustu sem mætir fólki á þeim stað sem það er í lífinu. 

Ríki og sveitarfélög bera ábyrgð á opinberri þjónustu fyrir eldra fólk, annars vegar heilbrigðisþjónustu sem ríkið ber ábyrgð á og hins vegar félagsþjónustu sem er á ábyrgð sveitarfélaga. 

Sveitafélögin á höfuðborgarsvæðinu bjóða nú endurhæfingu í heimahúsi. Í undirbúningi er hjá fleiri sveitafélögum að veita þessa þjónustu.

Þá er hægt að sækja um heimasjúkraþjálfun. Hún er ætluð fólki sem ekki á heimangengt heilsu sinnar vegna. Beiðni þarf að berast frá lækni.

Dagdvalir og dagþjálfun

Mikilvægur liður í því að geta búið áfram heima er að halda sér virkum. Víðast hvar eru reknar almennar dagþjálfanir eða dagdvalir. Þar fer fram fjölbreytt starfsemi en sótt er um til viðkomandi rekstraraðila eða heimilis sem býður úrræðið.

Eldra fólk sem býr heima en þarf reglulega umönnun getur sótt um að komast í dagdvöl eða dagþjálfun í einn eða fleiri daga vikunnar. Meira um dagdvalir og dagþjálfun eldra fólks hér.

Heilbrigðisþjónusta

Með hækkandi aldri aukast líkur á sjúkdómum og hrumleika. Innan heilsugæslustöðva og annarra heilbrigðisstofnana landsins starfa teymi sem styðja og leiðbeina eldra fólki, hjálpa þeim að greina áhættuþætti og veita leiðsögn um þau úrræði sem í boði eru.

Mikilvægt er að kynna sér þau úrræði sem bjóðast. Fyrsti viðkomustaður er alltaf heilsugæslan þín.

Aðstandendur

Að vera aðstandandi eldra fólks getur verið flókið hlutverk. Oftast er um að ræða maka, börn eða aðra nána ættingja og vini.

Aðstandendur greina oft frá því að þeir finni fyrir miklu álagi í umönnunarhlutverki sínu. Það getur verið krefjandi að annast t.d. einstakling sem glímir við heilabilun, sérstaklega á seinni stigum sjúkdómsins. Of mikið álag eykur líkur á heilsufarsvanda bæði hjá aðstandendum og hinum heilabilaða.

Það þarf að huga að mörgu sem aðstandandi og oft verður yfirþyrmandi að reyna að muna allt sem þarf að gera.

Við lífslok

Að leiða hugann að lífslokum sínum er mörgum fjarlægt og jafnvel eitthvað sem vakið getur óþægilegar tilfinningar. Þó svo að lífslokin séu ekki talin vera á næsta leiti getur verið mikilvægt að tekinn sé tími til að íhuga þau. Nánari upplýsingar um lífslok hér.

Þá er mikilvægt að þekkja réttindi tengd fjármálum við andlát maka, Tryggingastofnun | Réttindi við andlát maka

Á Ísland.is er líka að finna viðamiklar upplýsingar um allt sem varðar það að missa ástvin.

Góð ráð fyrir eldra fólk

Til eru margar leiðir í dag til að auðvelda sér hin ýmsu verkefni daglegs lífs. Tækni fleygir fram og mikilvægt að þau sem eldast leggi sig fram um að fylgjast með. Meira um góð ráð fyrir eldra fólk.